*Fegurðin er bölvun heimsins*

02.01.2008 16:28:59 / Beggzan88

Nýtt ár:)

Gleðilegt nýtt ár ;**

Rosalega hef ég verið löt við að blogga. Maður hefur svosem ekkert verið eitthvað upptekinn núna. Ég var í prófunum þarna í byrjun desember og ég náði öllu. Fékk 8 í spænskunni, 7 í sögu og 6 jarðfræði. Ætla að taka að mér núna 15 einingar :S sem er alveg hellingur í fjarnámi.. veit ekki hvar ég ætla að vinna því ég get nú unnið bara eitthvað takmarkað með þessu námi. Ég er svo bara búin að vera heima um jólin og hafa það ofboðslega gott... alltof gott eiginlega;) Kati kom svo til mín og var hjá mér yfir áramótin og hann þurfti svo að fara suður í gær til að vinna :( Það var bara fínt ballið hérna .. fyrst eitthvað rosalega vandræðalegt, enginn að dansa eða neitt en svo lagaðist það nú þegar fólk fór að súpa meira.  Svo var haldið í eftirpartý hjá Hirti og svo kom mamma og náði í okkur og var haldið heim beint á klósettið til að æla og var ég þar næsta klukkutímann. Hehe ekkert rosalega spennandi. Anna mín fer svo að koma heim loksins á föstudaginn frá Afríku. Hún er örugglega orðin ein af negrunum þar búin að vera í 30 stiga hita í 3 vikur. Ég hef svosem lítið meira annað að segja og ég vona bara að þið hafið haft það gott um jólin.

Langar að óska bróður mínum til hamingju með afmælið 26 des. Hann varð 15 ára litli drengurinn;)

 

Adios,

Bergþóra :*


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 22:29:16 / Beggzan88

jæjaaa :)

Jæja.. ofboðslega er maður nú latur í þessu .. það eru næstum tveir mánuðir liðnir síðan ég bloggaði :S en það er nú svosem ekkert mikið búið að ske hjá mér.. maður er bara búinn að vera vinna á fullu og læra.. ég geri ekkert annað .. jú og reyni að sofa smá inná milli ;)

Núna er ég komin vestur .. verð hérna í viku.. kati greyið er einn og ég var að kenna honum fyrst á þvottavélina okkar núna áður en ég fór hehe.. ég er að fara taka fyrsta prófið á morgun .. tek semsagt prófin bara í grunnskólanum heima.. og er fyrsta prófið saga .. ojjjj.. ég hata sögu..:evil: svo er próf á miðvikudaginn og er það spænska.. það verður einhvað fróðlegt held ég og svo seinasta prófið á föstudaginn sem er nátt113 semsagt jarðfræði. Ég er mjög ánægð að klára þetta allt saman í einni viku bara og svo ætla ég bara að dunda mér í desember. Er semsagt hætt í olís.. réð mig þar bara í 3 mánuði og vona svo að ég komist inní borgó eftir áramót. Á föstudaginn fórum við kati á jólahlaðborð hjá olís.. geðveikt gaman :D svo ánægð að fá að kveðja liðið svona. Við semsagt byrjuðum á því að fara í fyrirpartý heima hjá kollu..mættum þar um 6 og var þar frítt áfengi .. :lol: mætti svonaa einhvað af liðinu þangað ekki nærrum því allir en samt bara betra því meira áfengi fyrir okkur ;) drukkum alveg helling þar og fórum svo uppí Gullhamra í grafarholti þar sem hlaðborðið var haldið um 8. Við fórum þarna og settumst á okkar borð .. svo tók ég nú eftir því að kati var orðinn svolítið drukkinn greyið og leggst bara fram á borðið og leggur sig aðeins .. á meðan næ ég í að borða fyrir okkur og var ný sest niður aftur að þá ælir kallgreyið mitt yfir borðið hjá okkur og á gólfið.. allir nýbúnir að fá sér þennan fína jólamat á disk og þá ælir kati yfir allt haha.. :haha: svo kemur einhver dyravörður og segir við hann að hann verði nú að fara heim bara.. og ég sá hann ekki meir.. hann var semsagt farinn heim um 9 leytið.. :D ég hélt nú bara áfram að borða minn mat og svona eftir að var búið að skipta um allt á borðunum og skúra og svona hehe.. missti nú reyndar af aðalréttinum því við vorum einhvað að spjalla inná klósetti við vinkonurnar ;) fengum okkur svo eftirrétt og fórum nú bara svo að tíja okkur heim.. það voru nú alveg nokkrir orðnir ovurölvaðir þarna um 11 hehe.. svo fórum við Sigurbjörg og Brynhildur niðrí bæ að taka einn laugara og sungum alveg hástöfum;) ofboðslega gaman :) svo skreið ég heim um 2 leytið. Ég ætla núna að reyna fara læra einhvað .. langar ekkert að fara falla í sögu í 3 skipti .. ég vil óska henni Sylvíu minni til hamingju með búmbubúann sinn.. hún er sett 17 júlí .. sama dag og systir mín er fædd ;) svo fara bara jólin að koma.. gaman að því :P og svo ætlar hún anna pálí að yfirgefa okkur og fara til Afríku yfir öll jólin og áramótin.. lýst ekkert á þetta og á ég nú eftir að sakna hennar :(

Góða nótt ;**


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 23:07:41 / Beggzan88

langt síðan :)

Hellú :lol:

jæja .. liðnar 2 vikur síðan ég bloggaði.. :S en allavega að þá hefur nú lítið skeð síðan .. Kati kom heim loksins á fimmtudagsmorgninum.. kíkti á mig í vinnuna og sagði mér alveg hellings sögur .. honum fannst semsagt geðveikt gaman sem er nú bara gott ;) hann náði að týna veskinu sínu í leigubíl í new york.. finnur það aldrei aftur .. hann er svo mikill snillingur .. J um kvöldið var hann bara ekkert heima.. fór beint á verkstæðið og fór að laga einhvað.. ! svo á föstudeginum eftir vinnu kíkti ég aðeins til Guðrúnar frænku og kíkti á litlu frænku sem er orðin svo stór .. :D 3ja mánaða stelpa ..   svo skelltum við ég og kati okkur vestur um kvöldið.. og komum vestur um 10 .. og kati átti að vakna um 4 um nóttina til að fara með pabba uppá fjall að smala .. greyið ;) þeir vöknuðu hressir og svo fór ég bara að lúlla aftur sem var alveg yndislegt :D laugardaginn vorum við bara í réttum og svona .. lítið annað gert en að kindast .. og við fórum bara snemma að sofa um kvöldið. Vaknaði um 11 á laugardeginum .. og fórum að smala meira.. kati fékk að sofa alveg til hálf 3 .. og kom svo út að hjálpa .. svo voru aftur réttir og svo fórum við bara heim að borða góðan mat :D svo fórum við suður um 9 leytið sem við vorum svo ekki að nenna.. en ég var búin að taka mér frí á mánudeginum þannig það var í lagi.. ! svaf út á mánudaginn og lærði jú einhvað.. og var sú vika bara að læra, vinna og sofa .. lítið meira gert .. núna um helgina lærði ég bara allan föstudaginn .. og vaknaði svo um 10 á laugardeginum til að læra meira .. en nennti því nú ekki lengi og hringdi Anna svo loksins í mig eftir vinnu hjá henni um 3 leytið.. ! þá skutluðumst við kati til hennar og fórum og fengum okkur nammi :P fórum svo bara heim til okkar að horfa á sjónvarpið .. ! seinna um kvöldið fórum við að fá okkur að borða á hróa hetti .. sem var btw ógeðslega dýrt .. piff.. og þar að auki var einhver lithái að afgreiða okkur og skildi ekki rassgat og lét okkur borga of mikið og ég reifst alveg helling hehe .. :haha: viðskiptavinirnir hafa alltaf rétt fyrir sér ... ! :haha: svo fórum við að leigja spólu. Anna fór svo um 12 leytið minnir mig og fórum við kati þá bara út að labba aðeins.. svo gott veður .. og svo bara að lúlla .. ! Sunnudagurinn var rólegur .. lærði einhvað og svo fórum við kati út að borða á stylinn og fórum svo í bíó.. ég hafði ekki farið í bíó í hálft ár eða einhvað .. en allavega var þetta fínt .. fórum svo bara að sofa.

 

Dagurinn í gær og í dag hafa bara verið eins.. vinna, læra og svo bara sofa .. kati er núna inní Hafnarfyrði að taka einhvern range rover í sundur fyrir afa sinn þannig hann verður þar heillengi..

Ég hætti í dansinum.. Jóhanna er sár útí mig sem ég skil alveg .. en ég bara hafði ekki efni á þessu .. og mér fannst þetta ekkert gaman þannig mig langaði ekkert að reyna finna pening fyrir þessu.. :S allavega .. þá er þetta svona einhvað blogg fyrir þessa fáu sem lesa :lol: ég vona að Birgittu og bumbubúanum hennar líði sem best :haha: og ykkur öllum líka .. gangi ykkur sem allra best..

 

Adios! 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 22:55:37 / Beggzan88

leiðist .. =/

Hellú jæja.. er nú komin þriðjudagur .. þetta líður alveg rosalega fljótt .. sem mér finnst nú bara gott J

 

Helgin var fín.. samt rosalega skrítið að það var enginn Kati .. ég lærði alveg helling .. á laugardeginum kom Anna til mín um 6 leytið .. og fórum við á pizza hut .. ljúffengt :D svo fórum við bara heim til mín og fengum okkur nammi:P ég elska laugardaga= nammidaga :D svo kom Jóhanna til okkar um 9 leytið og við vorum bara að spjalla aðeins.. og svo bönkuðu Víðir og Ingibjörg hjá okkur og stoppuðu aðeins .. svo ákváðum við eftir að þau fóru að skella okkur aðeins á rúntinn og Anna greyið lenti í því að keyra.. ! Við ákváðum svo að kíkja aðeins til Lárusar á Ránargötuna og þar var nú fullt af fullum strákum .. ælandi og drepast hér og þar og svona .. hehe .. það var nú bara fínt .. svo fórum við bara að rúnta aftur og lentum í svona smávægilegu óhappi að við vorum næstum búnar að keyra á .. hefði alveg verið góður skellur ef Jóhanna hefði ekki látið í sér heyra 1 sec áður en við hefðu klesst á .. þannig við sluppum naumlega .. ! svo ætluðum við að taka einn laugara og Jóhanna fór að blikka bláu ljósi í bílinn fyrir aftan okkur .. með einhverjum kveikjara sem Anna á og það endaði með því að þeir fóru að blikka á okkur um að stoppa og við urðum að gera það því umferðin var stopp og bankar einn gaurinn úr bílnum fyrir aftan okkur á rúðuna og byrjar einhvað að spjalla.. og tilkynnir okkur að hann sé lögregla óeinkennisklæddur og fór að spurja önnu hvort hún væri að drekka og svona .. og svo biður hann okkur um að beygja niður næst til hægri.. svo þegar að því kom að þá mátti það ekki þannig við héldum bara áfram þangað til hann blikkaði okkur aftur .. og stoppuðum við rétt fyrir utan Oliver og Jónki var að vinna þannig þetta hefði nú verið í lagi ef það hefði einhvað komið uppá .. svo segir gaurinn önnu bara að taka skírteinið sitt og lyklana úr bílnum með og koma inní bíl til sín.. en hann vildi samt aldrei sýna okkur skírteinið sitt.. þannig Anna þorði ekkert að fara í bíl til einhverns ókunnugs manns. Hann sagði að  það væri útí bíl og hún fengi að sjá það þegar hún kæmi.. og Anna ætlaði svo ekki að gefa sig .. fyrr en hún sæi skírteinið hans og sem betur fer gerði hún það ekki því þetta var bara einhver gaur útí bæ að reyna fá hana inní bíl til sín.. ég sagði svo við hann að bróðir hennar væri að vinna hérna rétt hjá og þá sagði hann.. nei ég er nú bara að djóka í ykkur .. og fer svo í burtu .. vá hvað fólk getur verið ruglað.. hehe.. þetta var nú smá svona uppákoma J svo skutlaði Anna okkur bara heim og ég fór að lúlla um hálf 4.

Sunnudagurinn var ágætur .. svaf svolítið út og fór svo bara að læra .. svo ákváðum við Anna að fara í bakarí og fá okkur einhvað að borða og fórum svo til Jóhönnu að horfa á leikinn.. ég reyndar gafst upp .. var svo þreytt og fór heim .. svo var bara ekkert gert um kvöldið .. Mánudagurinn og dagurinn í dag eru búnir að vera svona allt í lagi .. ég er alveg að gefast uppá þessari vinnu minni .. kominn nýr yfirmaður og hann var nú ekkert skárri heldur en sú sem var áður .. þannig .. eg veit ekki .. !

Katarínus er núna bara í New York .. er að fara að borða með einhverjum ríkum gaur sem á 180 bíla .. svo er hann búinn að fara í Los Angeles, New Mexico í einhvað spilavíti hehe og north Carolina held eg og ýmislegt meira.. hef heyrt rosalega lítið í honum..   og hann kemur svo á fimmtudagsmorgun. :D stefnan er svo sett á það að fara vestur bara um helgina.. í aðrar leytir .. það verður örugglega fínt.. J allavega .. komið laaangt blogg núna J ég hef ekkert tíma í það núna að bæta inná þessa síðu þannig það verður að duga að ég reyni að blogga einhvað.

 

Kveðja Bergþóra


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 22:27:43 / Beggzan88

ég veit .. soldið langt síðan :P

Hææ .. :) eg veit að það er langt síðan ég skrifaði .. hef bara ekkert haft til að skrifa um .. og hef það svosem ekki .. ég er bara búin að vera vinna .. í þessari ,,skemmtilegu" vinnu.. þau borga frá 16-16 hverns mánaðar og þá fæ ég bara útborgað núna þennan mánuð fyrir 3-16 sept.. sem er ekki neitt.. og við þurfum að lifa á því næsta mánuð .. 8| það á ekki eftir að ganga vel held ég .. ! svo eru verkefnin bara að hlaðast á mann alltaf hreint .. nenni ekki þessu skólaveseni .. !

eg var nú að spá .. stelpa sem ég er að vinna með var að tala um að hún þekkir hjúkrunarkonu sem er háskólamenntuð .. og hún sem er ekkert menntuð og vinnur í olís virka daga 8 tíma á dag.. bara venjulegan tíma .. að þá er hún að fá meira útborgað heldur en háskólamenntaður hjúkrunarfræðingur.. spáið í þessu??? afhverju að vera leggja svona mikinn lærdóm á sig .. og svo fær maður kannski bara ekkert meira .. þetta kerfi á íslandi er alveg hræðilegt .. ! og hvað þá með kennaralaunin .. alveg hræðileg .. ! ég skil ekki svona og ég er mjög mikið á móti þessu .. :evil:

seinustu helgi fórum við kati vestur .. eða á laugardeginum .. og vorum komin um 3 leytið og við fórum beint að sofa hehe .. og sváfum í alveg 3 tíma .. eða já kati í 5 tíma hehe .. mjög þreyttur þessi elska .. og svo um kvöldið ákváðum við að skella okkur á réttarball sem ég vissi btw ekki einu sinni af fyrr en á laugardeginum .. og Anna og össi ákváðu að koma með okkur .. og þetta var bara mjööög fínt ball :haha: ég allavega skemmti mér mjög vel .. var orðin ansi drukkin á tímabili 8| vorum komin heim um hálf 6 .. !

ég vaknaði fyrst á sunnudeginum .. tilbúin í réttir klukkan 12 .. 8) var alveg skíítkalt í réttunum .. og ég fór svo heim um 3 til að fara elda matinn fyrir fólkið .. svo voru allir komnir um hálf 6 að borða .. og þáá fór ég nú að verðaa þuunn.. varð alveg ofboðslega illt í maganum og var alveg ómöguleg hehe .. vorum svo komin suður um 10 .. !

við kati ákváðum svo að vera bara veik á mánudeginum ... við gerðum svosem lítið .. sváfum fram að hádegi sem var yyyndiislegt .. og svo eyddi ég deginum í að læra .. svo er þessi vika ekkert búin að vera skemmtileg .. svo ákvað kati bara að skella sér til bandaríkjana í dag .. hehe.. fékk einhvað gott tilboð.. 60 þúsund fyrir flugið og lendir held ég í Los Angeles.. og hann verður í burtu í viku .. :whut: kemur heim næsta fimmtudag .. og ég er svooo einmana hér hehe.. og þetta er bara fyrsta kvöldið án hans .. ég er búin að vera hjá önnu í allan dag .. og ekkert búin að læra .. ekkert sniðugt .. en allavega .. þá er eins gott að hann komi með einhvað fallegt fyrir mig 8) djók:haha:

svo er ég eiginlega að spá í að hætta í þessum dansi.. mér finnst þetta ekkert skemmtilegt .. leiðinlegir dansar :S og svo er ræktin og opnu tímarnir þarna eiginlega ömurlegir .. hefði bara átt að hlusta á Ingibjörgu .. en ég veit ekki .. maður getur örugglega ekkert fengið peninginn til baka .. :( allavega :)

Góða helgi :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 20:35:32 / Beggzan88

komin 4 ár :)

Sælt veri fólkið :) ég er rosalega ánægð með hvað margir skrifuðu í skoðun hjá mér :D hehe þó það hafi bara verið 7 :)

ég er núna byrjuð í vinnunni í olís .. og þetta er svona lala .. :S get talað við tvær stelpur þarna .. svo eru vaktstjórnarnir með einhvað uppí rassgatinu á sér .. :evil: ef maður spyr um einhvað að þá fær maður ekki svar eða veistu þetta ekki ? bara dónaskapur.. en .. ég reyni að halda þetta út :| alltaf að vera jákvæður ekki satt .. :haha: skólinn er svona rétt að byrja hjá mér .. er komin með verkefni í spænsku og guð hjálpi mér ég skil ekki orð hehe .. er í 103 og ég held að það sé ekkert sniðugt að vera byrja að læra nýtt tungumál í fjarnámi .. kemur í ljós :)

seinustu helgi fór ég vestur og dró hann kata með mér .. og fórum í réttir á laugardeginum .. það var bara skítaveður .. rigning og rok .. svo ákvað ég að skella mér í starfsmannapartý hjá samkaup um kvöldið .. það var svona allt í lagi bara.. góður matur og svo kom sigga klenenberger eða hvað sem hún heitir hehe ... spákona og hún sá um skemmtunina .. svo fór ég bara heim um hálf 12 .. ! á sunnudeginum fórum við mamma að baka snúða .. ofboðslega gott :haha: svo fórum við fljótlega heim eftir það .. langaði ekkert að fara suður .. :evil:

 í dag eru komin 4 ár hjá okkur kata :) það er alveg slatti tími og svo er hann bara á bjórkvöldi í vinnuni hehe .. og ég ein heima.. en við ætlum bara að slaka á á morgun í staðinn:) svo á mánudaginn byrjar dansinn .. mér hlakkar bara mjög til :) hreyfa á mér bossann8)

allavega þá er þetta ekkert skemmtileg færsla hjá mér .. en ákvað samt að skrifa einhvað fyrir þessar 7 manneskjur sem lesa ;) allavega bara Góða Helgi :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 16:05:47 / Beggzan88

komin aftur :)

Góðann daginn:) ég ætla gera tilraun til að halda bloggsíðu aftur. Það er nú ekki allt tilbúið á henni og á ég örugglega eftir að setja einhvað á hana í rólegheitum. Veit nú ekki hvernig það á eftir að ganga en það kemur þá bara í ljós :)

Það er nú lítið að frétta af mér svosem.. var fyrir vestan í sumar og var að vinna í Samkaup.. sem ég vildi nú helst að ég hefði nú bara sleppt en tölum ekki um það meir svo fór ég í afleysingar í þrifum á dvalarheimilinu.. rosa stuð :) svo núna erum við kati komin með stúdíóíbúð saman uppí Gravarvoginum.. íbúðina sem Ingibjörg og Víðir voru í, rosalega fín íbúð :) ég er ekkert búin að vinna í ágúst.. ekkert smá löt:$ en ég er búin að redda mér vinnu og byrja að vinna 3 sept, er að fara vinna í olís sjoppu fyrir ofan gullinbrúnna.. 8) allir að koma að heimsækja mig :) og svo byrja ég í fjarnámi núna í september einhverntímann.. tók bara 9 einingar núna .. en samt svolítið erfiða áfanga að mínu mati. Svo ætlar ég og Jóhanna að skella okkur á dansnámskeið í 12 vikur og byrjar það núna 10 september.. gaman að sjá hvernig það fer hjá okkur :)

Núna sit ég bara ein í minni litlu íbúð að láta mér leiðast ofboðslega.. og bíð eftir að Anna verði búin í skólanum svo ég geti farið að hanga í henni ;) en allavega ég ætla að láta þetta duga núna :)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun


~♥Myndasíðurnar mínar♥~
4 ár <3
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1617 dögum